Um Stefán

Stefán Sölvi Pétursson
Fæddur: 20.mars 1986
Hæð: 195cm
Þyngd: 155kg
Ég byrjaði að æfa af fullu kappi haustið 2003 og einbeitti mér að kraftlyftingum til að byrja með. Með þeim var markmiðið byggja upp grunnstyrk áður en ég reyndi fyrir mér í aflraunum en það var búið að vera draumur síðan maður var gutti að fylgjast með Jóni Páli.
Árið 2004 keppti ég á nokkrum kraftlyftinga mótum sem gekk hálf brösulega fyrir sig þar sem ég var enn að læra á erfiðan útbúnað sem kraftlyftingamenn vilja gjarnan klæðast.
Árið 2005 byrjaði ég að keppa á aflraunamótum meðfram kraftlyftingum. Í ágúst þetta ár vann ég minn fyrsta titil í aflraunum þegar ég sigraði keppnina um Austfjarðatröllið. Síðar um veturinn fór ég í ferð til Finnlands ásamt vinum mínum Pétri Bruno og Benedikt Magnússyni til keppni á kraftlyftingamóti. Þar tók Benedikt heimsmet í réttstöðulyftu 440kg sem var jafnframt þyngsta réttstöðulyfta sögunnar á þeim tíma. Ég lyfti á því móti 350kg í réttstöðulyftu sem var heimsmet í táningaflokki þá.
Árið 2006 byrjaði ég að æfa eingöngu fyrir aflraunir. Það ár vann ég Vestfjarðavíkinginn og Austfjarðatröllið. Komst svo út til keppni í Skotlandi og Úkraínu og keppti svo á heimsmeistaramóti aflraunasambandins IFSA þar sem ég var hársbreidd frá því að komast í úrslit.
Í fyrstu keppni ársins 2007 í maí, slitnaði vinstri upphandleggsvöðvi. Við það þurfti ég að hætta keppni og gangast undir aðgerð. Það fór því þannig að ég missti af öllum keppnum það árið en einbeitti mér í stað þess að ná fullum bata og að koma mun sterkari til leiks árið eftir.
Eftir enduhæfingu og strangar æfingar kom ég sterkur til leiks í byrjun árs 2008. Keppti á fjölda móta hér heima og erlendis með ágætis árangri. Sigraði keppnirnar um Vestfjarðavíkinginn og Austfjarðatröllið og fór til Skotlands til að spreyta mig í hálandaleikum. Ég tók einnig þátt í tveim af sterkustu aflraunamótum heimsins. Fortissimus í Kanada og keppninni um Sterkasta mann heims sem fram fór í Bandaríkjunum.
2009 gekk vel og var nóg að gera í keppnum erlendis. Reynslan safnaðist upp og bætingarnar létu sjá sig. Ég komst t.d. í fyrsta sinn á verðlaunapall á alþjóðlegu móti og tryggði mig með því inn á sterkasta mann heims mótið aftur. Ég lenti þó í gríðarlega erfiðum riðli og komst ekki í úrslitin. Endaði árið með Sterkasti Maður Íslands og Vestfjarðavíkings titilinn og mikla og góða keppnisreynslu erlendis.
Keppnistímabilið 2010 var langt og viðburðarríkt. Titill um Sterkasta Mann Íslands var varinn örugglega en vikunni eftir í keppni í Noregi reif ég aðeins vinstri kálfavöðvann. Vegna þessa missti ég af mótinu um Vestfjarðavíkinginn. En meiðslin jöfnuðu sig vel á einum mánuði og fór maður varlega í næstu mót og hugsaði um þau einungis sem æfingu fyrir sterkasta mann heims mótið. Með góðri hjálp komst ég svo í æfingabúðir hjá óumdeilanlega sterkasta manni allra tíma, Zydrunas Savickas frá Litháen. Gengu æfingarnar afar vel vægast sagt og var sjálfstraustið mikið fyrir stóra mótið. Þar komst ég í úrslitin og kom svo mörgum á óvart og náði 4.sæti.
Bestu tölur í hinu og þessu
Apollon öxull 192,5kg
Drumbalyfta 175kg
Hnébeygja 330kg
Bekkpressa 226kg
Réttstöðulyfta 390kg
Atlas kúlusteinn 210kg 3 endurtekningar yfir 135cm.
Kútakast: 21kg yfir 5,8m og 25kg yfir 5,4m.
25kg lóðakast yfir rá. 5,49m (18 fet)
Allar aflraunakeppnir sem ég hef tekið þátt í.
2004
Austfjarðatröllið 2004 6.sæti ( Vantar staðfestingu )
2005
Sterkasti Kraftakarl Íslands 2005 Akureyri 5.sæti
Vestfjarðavíkingurinn 2005 7.sæti
Austfjarðatröllið 2005 1.sæti
2006
IFSA Sterkasti maður Íslands 2006 2.sæti
Vestfjarðavíkingurinn 2006 1.sæti
Callander games Skotland 2006 5.sæti
World´s strongest nation 2006 Úkraína Liðakeppni – Ísland var í 3. af 4 þjóðum í sínum riðli.
Austfjarða og Austurlandströllið 2006 1.sæti
IFSA World Championship 2006 5.sæti í 3.riðli undanúrslita.
Arnold challenge 2006 Úkraína 8.sæti
2007
IFSA Sterkasti maður Íslands 2007 ( meiddist og hætti keppni )
2008
Arnold challenge 2008 Úkraína 5.sæti
Texas Strongman Classic 2008 1.sæti
Strongman Champions League Serbía maí 2008 5.sæti
FÍK Sterkasti maður á Íslandi 2008 1.sæti
Sterkasti maður Íslands 2008 2.sæti
Fortissimus 2008 Montmagny Québec Kanada 8.sæti
Vestfjarðavíkingurinn 2008 1.sæti
Highlander challenge Scone Palace 5.sæti í riðli 2.
Callander Highland Games 8.sæti
World´s Strongest Nation 2008 Liðakeppni. Ísland endaði í 5.sæti.
Austfjarðatröllið 2008 1.sæti
World´s Strongest Man 2008 4.sæti í riðli 1.
New Hamshire Highland Games 2008 1.sæti
2009
Íslandsmeistaramótið í drumbalyftu 2009 2.-3.sæti
Viking Power Challange 2009 4.sæti
Sterkasti Maður Íslands 2009 1.sæti
Highlander Challange 2009 Norður Írland 6.sæti
Vestfjarðavíkingurinn 2009 1.sæti
Callander Highland Games 2009 Skotland 6.sæti
Killin Highland Games 2009 Skotland 7.sæti
Giants Live Pólland 2009 3.sæti
World´s Strongest Man 2009 3.sæti í riðli 2
Strongman Super Series Venice Beach CA 2009 9.sæti
2010
Íslandsmótið í drumbalyftu 2010 2.sæti
Giants Live - Suður Afríka 2010 4.sæti og Africa Grand Prix 3.sæti
WSM Experience London 2010 5.sæti
London Scotish Rugby Club Highland Games 2010 5.sæti
Sterkasti Maður Íslands 2010 1.sæti
Carmunnock Highland Games 2010 6.sæti
Viking Power Challenge 2010 Storefjell Noregi - ( Meiddist á kálfa í fyrstu grein og hætti. )
Callander Highland Games 2010 8.sæti
Giant´s Live Pólland 2010 8.sæti
World record attempt Antonov 124-100 plane pull Ulyanovsk Rússland 2010
Lithuanian Strongman Championship 2010 5.sæti
World´s Strongest Man 2010 Sun City Suður-Afríka. 4.sæti í úrslitunum.
Giant´s Live Tyrkland 2010 3. sæti.
Jón Páll Sigmarsson Classic (Þurfti að hætta keppni vegna veikinda)
2011
Giant's Live - London 2011 jafn í 4.sæti




