Næstu keppnir

LA Fit Expo 2012
Los Angeles, California, USA
28. og 29. janúar
Ég æfi 4-6 sinnum í viku og stundum tvisvar á dag. Í æfingunum er lögð áhersla á keppnisgreinarnar. En þær geta verið mjög margar í aflraunum. T.d. steinahleðsla, réttstöðulyfta, bændaganga, helluburður, trukkadráttur, kútakast, drumbalyfta, mylluganga, öxulpressa, uxaganga, hleðslugreinar, þrautir, risa handlóðapressa svo eitthvað sé nefnt. Einnig æfi ég fyrir hálandaleika þar sem keppt er í steina og staurakasti, lóða og sleggjukasti og 25kg lóði yfir rá. Með þessu er líka æft "hefðbundið" með tækjum og tólum sem sjást í flestum líkamsræktarstöðum landsins.
 
Mataræðið er mikilvægt fyrir árangur. En ég borða um 6-8máltíðir á dag og eru kaloríurnar í kringum 7-10 þúsund. Uppistaðan í mataræðinu er: egg, fiskur, kjöt, kjúklingur, haframjöl, hrísgrjón, kartöflur, grænmeti, ávextir og ávaxtasafar auk fæðubótaefna. Góðar fitur eru einnig nauðsynlegar.
 
 
Að bera 210kg skjöld í Póllandi.