Næstu keppnir

LA Fit Expo 2012
Los Angeles, California, USA
28. og 29. janúar

06.10.2011

Keppnin um Sterkasta Mann Heims 2011 er lokið!

The World's Strongest Man 2011 keppninni er lokið. Hún fór fram dagana 15.-22.september á campus Wingate háskólans í Monroe, Norður Karólínu.

Við vorum tveir að keppa fyrir hönd Íslands. Ég og Hafþór Júlíus Björnsson sem var að mæta á þetta mót í fyrsta sinn. Hann stóð sig virkilega vel og við náðum báðir að komast í gegnum undanriðlana og í 10 manna úrslit keppninnar.
 
Úrslitin gengu ekki eins vel fyrir mig og hafði vonað. En þrátt fyrir það lærði ég mikið og í raun meira en í fyrra þegar ég náði 4.sæti. Ég hafnaði í 9.sæti í ár og verður það að teljast ágætt miðað við hvað undan er gengið þetta árið. Hafþór endaði jafn í 6.-7.sæti sem er bara ótrúlega glæsilegur árangur miðað við að hann var að mæta þarna í fyrsta skipti. Ísland er að hasla sér völl í þessari keppni aftur og erum við báðir hungraðir í að ná þessum glæsta titli í náinni framtíð :)
 
Að burðast með 450 kílóa hlass á herðunum sem bera átti yfir 25m braut.
 
 
Til baka