Næstu keppnir

LA Fit Expo 2012
Los Angeles, California, USA
28. og 29. janúar

29.07.2011

Vestfjarðavíkingurinn 2011

Vestfjarðavíkingurinn fór fram 7.-9. júlí. Ég vildi ólmur mæta til leiks þótt það væru bara 12 vikur frá aðgerð.

Keppnin var virkilega skemmtileg í alla staði. Ég var mjög ánægður með mína frammistöðu miðað við að ég hafði aðeins verið nýbyrjaður að æfa venjulega eftir meiðslin. Ég fann þarna að ég verð í 100% formi á sterkasti maður heims keppninni sem er aðal markmiðið.
 
Hafþór Júlíus stóð sig vel og endaði sem sigurvegari annað árið í röð. Við vorum jafnir fyrir síðustu grein sem var tunnuhleðsla. Hann stakk mig þar af og tryggði sér sigurinn. Til hamingju Hafþór!
 
Topp 3
 
1. Hafþór Júlíus Björnsson
2. Stefán Sölvi Pétursson
3. Ari Gunnarsson
 


 
Til baka