Næstu keppnir

LA Fit Expo 2012
Los Angeles, California, USA
28. og 29. janúar

18.04.2011

Meiðsli í Texas.

Ég var búinn að hlakka mikið til að komast til félaga míns Svavars Sigursteinssonar í Texas til að keppa og kynna fjarþjálfunina mína. Nokkrum vikum áður komst ég að því að Benedikt Magnússon ætlaði að koma með sem gerði tilhlökkunina nú bara meiri.

Ég átti að keppa í bekkpressu og réttstöðulyftu þarna úti. Bekkurinn byrjaði ágætlega og var ég búinn að lyfta 500 pundum sem gera eitthvað yfir 226kg. Í þriðju og síðustu tilraun ákvað ég að reyna við 235kg en það fór svo að ég slasaði mig á hægri brjóstvöðva í þeirri tilraun. Varð því að hætta keppni því ég vissi að þetta var meira en smá tognun. Ég gerði mitt besta þar eftir að hvetja Benna áfram sem stóð sig eins og hetja og lyfti allra tíma heimsmeti í réttstöðulyftu með 460kg! Þrátt fyrir meiðslin var æðislegt að verða vitni af þessu magnaða afreki! Til hamingju Benni og til hamingju Ísland!!
Ég kom svo heim og eftir skoðanir og myndatökur færustu bæklunarlækna var ákveðið að gera aðgerð á meiðslunum.
Leiðinlegt að ég missi af nokkrum mótum en nú er ekkert annað en að jafna sig vel á þessu og gera sig klárann fyrir stærsta mótið sem yfirleitt er haldið í september!
 
Ég verð í mínu besta formi fljótlega gott fólk!
 
Mynd af marinu 5 dögum eftir.
Til baka