Næstu keppnir

LA Fit Expo 2012
Los Angeles, California, USA
28. og 29. janúar

24.03.2011

4.sæti í London

Fyrsta móti ársins er lokið! Virkilega flott og skemmtilegt mót í London!

Ég var orðinn heldur betur spenntur að keppa enda hafa æfingar gengið vel og vill ég þakka perform.is fyrir hjálpina með frábær fæðubótaefni sem hjálpa mér að ná mér milli æfinga. Ekki skemmdi það fyrir að keppnin fór fram á afmælisdaginn minn :)
 
Fyrsta grein var réttstöðulyfta á max með venjulegri power stöng. Ég togaði upp 390kg sem er bæting nokkuð létt en renndi aðeins lærunum undir samt. Næsta þyngd sem var boðin upp var 412,5kg. Ég ákvað að sleppa henni því mér þótti að of stórt stökk og svo voru líka 5 erfiðar greinar eftir. Terry tók þá þyngd (vill taka það fram að hann var meiddur og hætti keppni eftir réttstöðuna), Mark Felix tók 420kg, Loz og Brian Shaw tóku 430kg og Brian rétt klikkaði svo á 440kg. Heldur betur rosalegar þyngdir!
 
Önnur grein var bændaganga. Við áttum að bera 170kg lóð yfir 40m (20m og 20m til baka). En það þurfti að stytta brautina í 16m vegna þess að sjónvarps crew-ið þurfti meira pláss. Þá var þyngin hækkuð í 187,5kg sem bera átti þá 32m á sem bestum tíma. Ekkert smá hlass en ég fór þetta á um 22sek að mig minnir sem nægði fyrir 3.sæti. Loz og Felix voru með betri tíma.
 
Þriðja grein var apollon öxull á max sem ég hlakkaði mikið til enda hafa æfingar í þeirri grein gengið mjög vel. En því miður þá náði ég að togna svona líka laglega efst í latsanum þar sem hann festist upp í handakrikanum. En það var bara sársauki þegar ég hélt stönginni fyrir ofan höfuðið þannig að ég ákvað að reyna og sjá hvað ég gæti. 185kg fóru upp en 195 réð ég ekki við eftir það. Lalas og Loz tóku þá þyngd en Brian vann með 205kg.
 
Fjórða grein var hleðsla. En hlaða átti tveim risa stórum bjór kútunum ábyggilega um 75-100lítra sem vógu 130kg og sandpoka líka 130kg upp á pall. Ég fór varlega vegna tognunarinnar en náði samt góðum tíma og 3.sæti í greininni.
 
Fimmta grein var 100kg risa handlóð á reps. Ekki mín besta grein en ég veit að ég hefði getað eitthver reps með hægri en ég gat ekki notað hana út af fyrr greindum ástæðum. Prófaði með vinstri sem fór grátlega nálægt en gekk ekki. Tapaði því dýrmætum stigum. Brian vann með 5 og Lalas var annar með 4.
 
Loka keppnisgrein var eins og oft áður atlas steinatök. Nokkuð þung sería en hún var 130-140-160-185-205kg (að mig minnir). Ég náði ágætis tíma þó ég hafi aftur farið frekar varlega og náði öðru sæti en Brian vann greinina og mótið eins og flestir bjuggust við.
 
Ég endaði jafn í 4.sæti með Mark Felix, er nokkuð ánægður með það miðað við aðstæður og veit að ég á inni.
 
 
1. Brian Shaw (USA) 67.5
2. Laurence Shahlaei (UK) 54.5
3. Vitautas Lalas (Lithuania)
53.0
4. Stefan Solvi-Petursson  (Iceland) 50.5
4. Mark Felix (UK) 50.5
6. Darren Sadler (UK)
47.0
7. Gary Gardner (UK) 31.0
8. Rafel Wilczynsk (Poland) 30.5
9. Lauri Nami (Estonia) 28.5
10. Alex Curletto (Italy) 13.5
11. Terry Hollands (UK) - withdrew
9.0
12. Ricardo Nort (Brazil) 8.5
Til baka