Næstu keppnir

LA Fit Expo 2012
Los Angeles, California, USA
28. og 29. janúar

23.11.2010

Brian Shaw vinnur JPS Classic

Því miður þurfti ég að hætta keppni á Jón Páll Sigmarsson Classic vegna veikinda og meiðsla. Mótið var samt hið allra glæsilegasta og mjög gaman að fylgjast með átökunum.
 

Mættir voru sterkir menn til leiks eins og Brian Shaw sem var annar á Sterkasti Maður Heims núna í ár, Terry Hollands Sterkasti Maður Englands, Mark Felix, Richard Skog, Jeremy Hogg. Frá Íslandi mættu Hafþór Júlíus, Georg Ögmundsson, Páll Logason ásamt mér sjálfum.
 
Hafþór stóð sig einkar vel og sýndi það að hann verður harður í horn að taka næstu ár. Hann mætti með flottar bætingar í öllum greinum og var Íslandi til sóma.
 
Brian Shaw vann mótið sem kom kannski engum á óvart og átti hann og Hafþór góðar tilraunir við 241kg náttúrustein í lokagreininni í Laugardalshöll.
 
Eins og ég tók fram þá þurfti ég því miður að hætta keppni vegna slæmra magakveisu, veikinda og smá meiðsla sem hafa verið að hrjá mig undanfarið. Það bara borgar sig ekki að reyna of mikið á sig þá m.a. vegna hættu á meiðslum. Þetta er búið að vera langt og strangt keppnisár og get ég ekki verið annað en sáttur við að ná mörgum markmiðum sem ég setti mér. Núna er kominn tími til að hvíla skrokkinn með léttum æfingum næstu vikur og búa sig undir átök næsta tímabils.
 
Fyrir nánari upplýsingar um JPS Classic farið þá á vöðvafíkn.net !
Til baka